Stig
Stöðupróf í íslensku
-
Sú krafa er gerð þegar sótt er um íslenskan ríkisborgararétt að umsækjandi hafi staðist próf í íslensku. Heimilt er að leggja inn umsókn um ríkisborgararétt áður en íslenskupróf er tekið en umsóknin verður þá ekki tekin til endanlegrar afgreiðslu fyrr en prófskírteini hefur borist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. (Sjá 1. reglugerð um próf í íslensku og 2. ákvæði um íslenskupróf fyrir umsækjendur)
-
Næstu íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefjast hjá Námsmatsstofnun hinn 31. maí næstkomandi. Skráningu í próf verður að vera lokið fyrir 10. maí. Þeir sem skrá sig síðar eiga kost á því að taka próf í desember 2010. Nánari upplýsingar um skráningu og prófstað má finna á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is eða í síma 550-2400.
-
Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7000 krónur.
Upplýsingar um viðurkennt íslenskunám sem skilyrði fyrir útgáfu búsetuleyfi eru að finna hér




