-
Fyrir þá sem ekki tala íslensku er mikilvægt að sækja námskeið í tungumálinu.
-
Íslenskukunnátta auðveldar aðlögun að íslensku samfélagi og eykur möguleika á fjölbreyttari störfum og betri launum.
-
Þeir sem geta bjargað sér á íslensku eiga líka auðveldara með að nýta sér ýmsa þjónustu og auðveldar þeim að fylgjast með því sem gerist í kringum þá.
-
Námskeiðin sem boðið er upp á eru mismunandi og hægt er að sækja námskeið bæði fyrir byrjendur og svo stig af stigi eftir því sem skilningur eykst.
-
Talsvert úrval er af íslenskunámskeiðum. Eftirfarandi listi á að vera leiðbeinandi fyrir þá sem eru að leita að námskeiðum við sitt hæfi. Listinn er ekki tæmandi og allar ábendingar vel þegnar.