Frágangur, móttaka og afgreiðsla dvalarleyfis


Ákveðnar reglur gilda um afgreiðslu umsókna og hvaða gögn þurfa að fylgja þeim en það fer eftir því um hvers konar dvalarleyfi er sótt.




Frágangur umsókna

Til að afgreiðsla umsókna gangi sem hraðast fyrir sig er ráðlegt að:

  1. fylla umsókn vandlega út,
  2. skila umsókn í frumriti og
  3. gæta þess að öll fylgigögn, sem krafist er, séu til staðar.

Fylgigögn umsókna þurfa að vera í frumriti eða staðfest afrit af frumriti.



Nauðsynleg fylgigöng með öllum umsóknum

  1. Ljósrit af vegabréfi.
  2. Passamynd. Myndir verður að taka á skrifstofum sýslumanna eða hjá Útlendingastofnun.
  3. Staðfesting á kennitölu.
  4. Staðfesting á framfærslu, til dæmis launaseðlar eða greiðslur af sjálfstæðri atvinnustarfsemi. Þetta á við um ríkisborgara ríkja innan EES.
  5. Staðfesting á framfærslu frá atvinnurekenda á starfshlutfalli og tímabili ráðningar eða ráðningarsamningur.
    Þetta á við um ríkisborgara ríkja utan EES.
  6. Húsnæðisvottorð - Útlendingi ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til.

Sjá nánar tímabundið atvinnu- og dvalarleyfi

Skjöl sem getur þurft að leggja fram, eftir eðli umsóknar
Forsjárgögn, fæðingarvottorð, skilnaðargögn, heilbrigðisvottorð, hjúskaparvottorð, vottorð um staðfesta samvist, vottorð um skráða sambúð, dánarvottorð, sakavottorð og umboð.

Þýðingar á fylgiskjölum

Nauðsynlegt er að fá löggiltan skjalaþýðanda til að þýða umsóknargögn. Skjöl á ensku, dönsku, norsku og sænsku þurfa ekki að vera þýdd á íslensku.

Móttaka umsókna

  • Tekið er á móti umsóknum í afgreiðslu Útlendingastofnunar og á skrifstofum sýslumanna. Staðgreiða þarf fyrir dvalarleyfisumsóknir. Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt.

Bankareikningur Útlendingastofnunar

Gjald fyrir dvalarleyfisumsóknir

Greiðslukvittun - leiðbeiningar fyrir ríkisborgara landa utan EES

  • Greitt er fyrir dvalarleyfisumsókn með því að leggja inn á bankareikning Útlendingastofnunar. Greiðslukvittun verður að fylgja umsókninni svo hún fái afgreiðslu.
  • Umsókn er endursend ef greiðslukvittun fylgir ekki.
  • Á greiðslukvittun þarf að koma fram nafn og kennitala umsækjanda, ef hann hefur fengið úthlutað kennitölu. Þessar upplýsingar þurfa að vera í samræmi við vegabréf umsækjanda.

>Dæmi um einstakling með kennitölu:

  • 010185-4679, Jón Jónsson

>Dæmi um einstakling sem ekki hefur enn fengið kennitölu:

  • 010185-JÓNSSON (Jón Jónsson)

Afgreiðsla umsókna

Eftir að öll umbeðin gögn með umsókn hafa borist er áætlaður afgreiðslutími umsókna:

  • 90 dagar fyrir ríkisborgara ríkja utan EES.
  • Þegar afgreiðslu umsóknar er lokið fær umsækjandi skriflega tilkynningu þess efnis.
  • Umsækjandi fer með tilkynninguna og vegabréf sitt til þeirrar lögreglustöðvar sem lögheimili hans tilheyrir. Þar fær hann viðeigandi stimpil eða límmiða til staðfestingar á dvalarleyfinu í vegabréfið.
  • Ef umsókn um dvalarleyfi er synjað getur umsækjandi kært ákvörðun Útlendingastofnunar til dóms- og kirkjumálaráðuneytis.

Framlenging á dvalarleyfi

  • Umsókn um framlengingu á dvalarleyfi þarf að berast Útlendingastofnun minnst einum mánuði áður en gildandi dvalarleyfi rennur út.
  • Það er á ábyrgð umsækjanda að umsókn um framlengingu sé lögð inn hjá Útlendingastofnun í tæka tíð.

Sjá nánar tímabundið atvinnu- og dvalarleyfi