Dvalarleyfi

Ríkisborgari frá landi utan EES sem kemur til að vinna á Íslandi

Þegar þú kemur til Íslands þá á að vera búið að:

Sækja um kennitölu fyrir þig hjá Þjóðskrá

Sækja um atvinnu- og dvalarleyfi fyrir þig hjá Útlendingastofnun

Gera við þig ráðningarsamning sem þú hefur skrifað undir

Kaupa sjúkratryggingu fyrir þig hjá vátryggingarfélagi á Íslandi

Þú þarft að hafa fengið vegabréfsáritun til Íslands (ef við á), kennitölu, atvinnu- og dvalarleyfi, ráðningarsamning, sjúkratryggingu og tryggt húsnæði áður en þú mátt koma til Íslands

Ert þú búin(n) að: (eftir að þú kemur til Íslands)

Tilkynna flutning og skrá aðsetur þitt á Íslandi?

Fara í heilbrigðisskoðun og fá læknisvottorð sem þarf að skila til Útlendingastofnunar?

Fara í myndatöku hjá Útlendingastofnun eða hjá sýslumanni?

Fá staðfestingu á því að þú sért skráð(ur) í Þjóðskrá? ( ekki á utangarðsskrá)

Athuga hjá atvinnurekanda hvort búið er að sækja um skattkort fyrir þig?

Sækja um þjónustu og kynna þér réttindi þín hjá sveitarfélaginu sem þú hefur lögheimili í ? (húsnæði, húsaleigubætur, skólar, samgöngur, tómstundir, heilsugæsla, félagsleg aðstoð og fleira)

Sækja um og kynna þér þjónustu hjá fyrirtækjum, stofnunum eða félagasamtökum í þínu sveitarfélagi ? (sími, hiti og rafmagn, bankar/sparisjóðir og fleira)

Gögn og vottorð þurfa að vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli, þýdd af löggiltum skjalaþýðanda.