Dvalarleyfi

Ferðataskan - það sem ætti að hafa með sér til Íslands - utan EES

Gögn sem gott er að hafa með sér við komuna til landsins og geta flýtt meðal annars fyrir afgreiðslu umsókna eru eftirfarandi:

  • Vegabréf eða viðurkennd kennivottorð
  • Passamyndir
  • Ökuskírteini

Frumrit af vottorðum sem við eiga - fer eftir tilgangi dvalar og dvalarleyfis sem sótt er um:

  • Fæðingarvottorð
  • Sakavottorð
  • Hjúskaparvottorð
  • Forsjár-/skilnaðar-/eða dánargögn
  • Staðfesting á sambúð/samvist
  • Prófskírteini/staðfestingu á menntun/atvinnu
  • Upplýsingar frá skólum/leikskólum vegna barna ef við á.

Vottorð þurfa að vera þýdd af löggiltum skjalaþýðanda á íslensku/ensku/dönsku/norsku eða sænsku.