Atvinnuleyfi

  • Erlendur ríkisborgari sem vill stunda nám í framhaldsskóla eða háskóla hér á landi getur sótt um námsmannaleyfi. Aðeins er hægt að sækja um námsmannaleyfi fyrir nám á framhaldsskólastigi ef um löggilt iðnnám eða annað samþykkt starfsnám er að ræða.
  • Námsmannaleyfi er ekki veitt nema um fullt nám sé að ræða og að námið sé viðurkennt sem lánshæft af Lánasjóði íslenskra námsmanna.
  • Umsækjanda má ekki vera á landinu þegar sótt er um dvalarleyfið. Ef hann er á landinu þegar sótt er um leyfið verður hann að fara af landi brott.
  • Umsóknin ásamt eftirtöldum gögnum þarf að berast til Útlendingastofnunar sem tekur ákvörðun um dvalarleyfi.
  • Fyrir haustönn þarf umsókn, auk fylgigagna, að hafa borist stofnuninni eigi síðar en 15. júlí hvers árs.
  • Fyrir vorönn þarf umsókn, auk fylgigagna, að hafa borist stofnuninni eigi síðar en 15. nóvember hvers árs.
  • Námsmannaleyfi getur ekki verið grundvöllur búsetuleyfis
  • Aðstandendur erlends ríkisborgara sem stundar doktorsnám hér á landi getur sótt um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar en ekki aðstandendur annarra námsmanna.

Útlendingastofnun tekur ekki umsókn til afgreiðslu fyrr en greitt hefur verið fyrir hana.

Áætlaður afgreiðslutími umsókna er 90 dagar eftir að öll gögn hafa borist

Hér má nálgast upplýsingar um þau gögn sem þurfa að fylgja umsókn

  • Ef ákvörðun um dvalarleyfi liggur fyrir þarf umsækjandinn að fá D-áritun í næsta sendiráði sem er í fyrirsvari fyrir Íslands hönd. Í dvalarleyfisumsókn skal tekið fram í hvaða sendiráði umsækjandinn hyggst fá afhenta vegabréfsáritun.

Lista yfir sendiráð má nálgast hér.

Eftir komuna til landsins þarf umsækjandi að:

Að þeim skilyrðum uppfylltum er leyfið gefið út og dvalarleyfiskortið sent á heimilisfang viðkomandi. Upphaf dvalar miðast við útgáfudag dvalarleyfis.

Heimilt er að leggja inn umsókn um atvinnuleyfi að lokinni fyrstu námsönn ef sýnt er fram á fullnægjandi námsárangur

Framlenging

  • Hægt er að sækja um að fá dvalarleyfið endurnýjað á meðan námstíma stendur ef skilyrði dvalarleyfis eru uppfyllt og námsárangur telst viðunandi.
  • Dvalarleyfið er að jafnaði endurnýjað til loka næstu námsannar. Útlendingastofnun gefur nánrari upplýsingar.
  • Umsækjandi þarf að skila inn umsókn um framlengingu að minnsta kosti mánuði áður en leyfi hans rennur út til að halda sömu réttindum. Ef umsækjandi ætlar að leggja inn umsókn um framlengingu eftir að leyfið rennur út þá verður hann að fara af landi brott. Umsóknin verður ekki tekin til afgreiðslu fyrr en brottfararspjald hefur borist stofnuninni.
  • Umsækjandi verður að mæta í myndatöku þegar lögð er fram umsókn um dvalarleyfi nema annað sé tekið fram.

Hér má nálgast upplýsingar um þau gögn sem þurfa að fylgja umsókn um framlengingu

Nánari upplýsingar á vef Útlendingastofnunnar



Til baka, Senda grein, Prenta greinina