Atvinnuleyfi

Þegar sótt er um leyfi í fyrsta sinn verður að vera búið að samþykkja leyfið áður en útlendingurinn kemur til landsins. Ef útlendingurinn er á landinu þegar sótt er um atvinnu- og dvalarleyfi í fyrsta sinn þarf hann að fara af landi brott á meðan. Atvinnurekandinn sækir um atvinnu- og dvalarleyfið og kennitölu fyrir útlendinginn.




>Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Umsókn um dvalarleyfi – útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  • Umsókn um atvinnuleyfi – útfyllt og undirrituð af atvinnurekanda, í frumriti.
  • Ráðningarsamningur – milli atvinnurekanda og umsækjanda.
  • Ljósrit úr vegabréfi – Gildistími vegabréfsins þarf að vera minnst þrír mánuðir lengri en gildistími dvalarleyfisins.
  • Sakavottorð – Sakavottorðið má ekki vera eldra en sex mánaða og þarf að koma frá því ríki sem umsækjandinn hefur verið búsettur síðastliðin fimm ár.
  • Sjúkratrygging – Tryggingin þarf að vera að lágmarki 2.000.000 íslenskar krónur og vera gefin út af vátryggingarfélagi á Íslandi.
  • Umboð – Umsækjandi veitir einhverjum aðila hér á landi umboð til þess að sjá um mál sín hérlendis.
  • Húsnæðisvottorð – Umsækjandi þarf að sýna fram á það að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsóknin nær til.

Þau vottorð sem eru ekki á ensku, íslensku eða norðurlandamáli þarf að þýða og þýðingin þarf að vera unnin af löggiltum skjalaþýðanda. Þýðingin má vera á einhverju af ofangreindum tungumálum.

  • Áætlaður afgreiðslutími Útlendingastofnunar fyrir dvalarleyfi er 90 dagar eftir að öll fullnægjandi gögn hafa borist.

Framlenging á tímabundnu atvinnu- og dvalarleyfi

  • Ef umsókn um framlengingu hefur borist á réttum tíma getur umsækandi dvalist áfram á Íslandi þangað til að ákvörðun hefur verið tekin um það hvort umsóknin verði samþykkt.
  • Það verður að sækja um framlengingu að minnsta kosti mánuði áður en að leyfið rennur út. Annars þarf umsækjandinn að fara úr landi.
  • Umsækjandinn ber sjálfur ábyrgð á því að sækja um framlenginu á réttum tíma.

>Gögn sem þurfa að fylgja umsókn um framlengingu:

  • Umsókn um dvalarleyfi – útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  • Umsókn um atvinnuleyfi – útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  • Ráðningarsamningur – á milli atvinnurekanda og umsækjanda.
  • Ljósrit úr vegabréfi – Gildistími vegabréfsins þarf að vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  • Húsnæðisvottorð – sem sýnir fram á að umsækjandinn hafi tryggt húsnæði þann tíma sem umsóknin tekur til.
  • Vottorð frá félagsþjónustu – Umsækjandi þarf að skila inn vottorði frá viðkomandi félagsþjónustu þar sem fram kemur hvort hann hafi þegið framfærslustyrk á Íslandi.
  • Yfirlit staðgreiðslu – Skila þarf inn vottorði frá viðkomandi skattayfirvöldum um að umsækjandi hafi borgað skatt síðustu 12 mánuði.


Til baka, Senda grein, Prenta greinina