Fylgigögn

Með umsókninni þarf að fylgja:

Fæðingarvottorð í frumriti – Vottorði, sem er á öðru tungumáli en ensku eða norðurlandamáli, þarf að fylgja þýðing sem er unnin af löggiltum skjalaþýðanda

Ljósrit af vegabréfi umsækjanda sem er staðfest af sýslumanni eða innanríkisráðuneytinu

Búsetuvottorð frá Þjóðskrá Íslands þar sem fram kemur hversu lengi umsækjandi hefur átt lögheimili á Íslandi

Ljósrit af búsetuleyfi frá Útlendingastofnun ef umsækjandi er ekki undanþeginn leyfisskyldu. Umsækjendur sem annað hvort eru undanþegnir leyfisskyldu eða sem hafa ekki fengið útgefið búsetuleyfi - en hafa fengið óbundið atvinnu- og dvalarleyfi - þurfa að leggja fram:

a) Vottorð þar sem kemur fram að viðkomandi hafi lokið 150 stundum í íslenskukennslu eða þreytt stöðupróf í íslensku

b) Staðfest afrit af skattframtölum síðustu þriggja ára.

Framfærsluvottorð frá því sveitarfélagi eða sveitarfélögum sem umsækjandi hefur átt lögheimili í síðastliðin þrjú ár til þess að sýna fram á að umsækjandi hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu á þeim tíma

Launaseðlar síðustu þriggja mánaða

Staðfest afrit af skattaframtölum síðustu þriggja ára

Tvær umsagnir frá íslenskum ríkisborgurum um umsækjanda – Það þarf að leggja fram tvær sjálfstæðar umsagnir. Í þeim þarf að koma fram nafn umsækjanda, hvernig sá sem skrifar umsögnina tengist honum, hvaða starfi umsækjandi gegnir og hvernig honum vegnar í starfi og í íslensku samfélagi, hvernig kynni eru af honum og hversu góð íslenskukunnátta hans er. Nafn, kennitala og símanúmer þess sem skrifar umsögnina þarf að koma fram.

Yfirlit frá innheimtumanni ríkissjóðs sem sýnir að umsækjandi skuldi ekki skatta eða önnur opinber gjöld. (Innheimtumenn ríkissjóðs eru sýslumenn í viðkomandi umdæmi en í Reykjavík er það Tollstjórinn í Reykjavík)

Sakavottorð frá heimalandi - Umsóknin verður ekki tekin til vinnslu fyrr en sakavottorðið hefur borist – Umsækjandi sem er frá ríki utan EES, sem fékk fyrst útgefið dvalarleyfi á Íslandi eftir 1. janúar 2003, og hefur lagt fram sakavottorð hjá Útlendingastofnun, getur óskað eftir að fá afrit sakavottorðs afhent hjá stofnuninni. Innanríkisráðuneytið áskilur sér þó rétt til að kalla eftir sakavottorðum.

Vottorð um íslenskukunnáttu – Þeir sem fengu búsetuleyfi útgefið eftir 1. janúar 2003 eru undanþegnir þessu skilyrði. Athuga þarf að þann1. janúar 2009 tekur gildi það ákvæði í lögum um íslenskan ríkisborgararétt að umsækjandi þurfi að hafa staðist próf í íslensku. Sjá nánar hér.

Hjúskaparvottorð ef umsækjandi er giftur.

Athuga þarf að öll ljósrit verða að vera staðfest! Sýslumaður, sendiráð, ræðismaður eða innanríkisráðuneyti staðfesta að ljósrit sé af frumriti.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina