Barn
Ef óskað er eftir að barn hljóti íslenskan ríkisborgararétt með foreldri þarf að fylgja umsókn:
1. Fæðingarvottorð barnsins í frumriti - Vottorði, sem er á öðru tungumáli en ensku eða norðurlandamáli, þarf að fylgja þýðing sem er unnin af löggiltum skjalaþýðanda
2. Ljósrit af vegabréfi sem er staðfest af sýslumanni eða innanríkisráðuneyti
3. Ef báðir foreldrar fara með forsjá barnsins þarf að leggja fram samþykki hins forsjárforeldris fyrir því að barn öðlist ríkisborgararétt með foreldri
4. Ef annað foreldri fer með forsjá barns þarf að leggja fram gögn sem sýna fram á hver fer með forsjá barnsins

