Hátíðis- og frídagar
Stórhátíðisdagar
- Nýársdagur (1. janúar)
- Föstudagurinn langi
- Páskadagur
- Hvítasunnudagur
- 17. júní (þjóðhátíðardagur Íslendinga)
- Aðfangadagur (24. desember) eftir klukkan 12.00
- Jóladagur (25. desember)
- Gamlársdagur (31. desember) eftir klukkan 12.00
Ef unnið er á þessum dögum er greitt samkvæmt svokölluðum stórhátíðartaxta sem er hærri en hefðbundinn yfirvinnutaxti.
Almennir frídagar
- Annar í jólum (26. desember)
- Skírdagur
- Annar í páskum
- Sumardagurinn fyrsti
- Uppstigningardagur
- 1. maí (alþjóðlegur frídagur verkafólks)
- Annar í hvítasunnu
- Fyrsti mánudagur í ágúst (frídagur verslunarmanna)
Þegar unnið er á þessum dögum er starfsmanni greitt yfirvinnukaup.

