Skráning aðseturs
-
Allir, 18 ára, og eldri sem flytja til Íslands til að búa eða vinna í stuttan tíma eiga að tilkynna aðsetur sitt til þess sveitarfélags sem dvalið er í innan 7 daga frá komu til landsins.
-
Norrænir ríkisborgarar þurfa að fylla út eyðublað sem heitir samnorrænt flutningsvottorð.
-
Aðrir þurfa að fylla út eyðublað sem kallast Flutningstilkynning innanlands og setja þá viðkomandi land sem stað sem flutt er frá eða til.
-
Eyðublaðið er hægt að nálgast á skrifstofum sveitarfélaga eða rafrænt á vefsíðu Þjóðskrár:
Orðalisti á pólsku til útskýringar eyðublaðinu má nálgast hér
-
Mögulegt er að fylla út eyðublaðið á netinu en muna þarf að skrifa undir það. Eyðublaðið er einnig til á ensku.
-
Tilgreina þarf á eyðublaðinu alla þá sem flytja saman.
-
Flutninginn er líka hægt að tilkynna til Manntalsskrifstofu, Þjóðskrár eða lögregluvarðstofu.
-
Foreldrar eða forráðamenn barna yngri en 18 ára verða að tilkynna þau líka.
-
Undanþegnir þessari skyldu eru þeir sem eru ekki að vinna og eru á Íslandi skemur en 3 mánuði.
-
Það þarf líka að tilkynna aðseturskipti áður en sjö dagar eru liðnir þegar flutt er á milli staða á Íslandi.
-
Aðsetur er ekki sama og lögheimili. Aðsetur getur verið hvar sem er.

