Sími og internet
Símtöl til Íslands erlendis frá
Þegar hringja á til Íslands er landsnúmerið +354 valið og svo viðkomandi símanúmer, t.d. +354 450 3091.
Símtöl til útlanda frá Íslandi
Þegar hringja á frá Íslandi til annars lands þarf að hafa viðkomandi landsnúmer við hendina og má nálgast lista yfir þau hér.
-
Fyrst er 00 valið, svo landsnúmerið og að lokum erlenda símanúmerið sem hringja á í, t.d. 00 (44) 7816219546 þegar hringt er til Englands.
| Allar nánari upplýsingar um símtöl til útlanda fást í síma 1811 |
Fyrirtæki og þjónustuaðilar
-
Hjá flestum símafyrirtækjunum er hægt að nálgast farsímakort, símatengingar í heimahús og internettengingu og -aðgang.
-
Þegar keypt eru frelsiskort, fyrirframgreidd farsímakort af símafyrirtækjunum, má kaupa áfyllingu í flestum matvöruverslunum, bensínstöðvum og sjoppum víðast hvar á landinu. Einnig er hægt að kaupa símkort til þess að hringja til útlanda sem eru hagstæðari en hefðbundin kort.

