Uppsagnarfrestur
Uppsagnarfrestur:
Það er aðeins heimilt að segja upp ótímabundnum húsaleigusamningum. Ef samningur er tímabundinn rennur hann út eftir ákveðinn tíma og ekki er hægt að segja honum upp nema það sé sérstaklega tekið fram í samningnum. Annars fellur hann úr gildi á umsömdum degi án sérstakrar tilkynningar.
Ef samningur er hinsvegar ótímabundinn, þá er uppsagnarfrestur einn mánuður ef leigt er herbergi en sex mánuðir ef um er að ræða íbúð. Ef viðkomandi hefur haft íbúð á leigu lengur en í fimm ár verður að segja íbúðinni upp með eins árs fyrirvara. Uppsagnarfresturinn er gagnkvæmur (þetta gildir fyrir báða aðila, leigjanda og leigusala).
Leigjandi og leigusali geta þó náð samkomulagi sín á milli um styttri uppsagnarfrest ef báðir aðilar samþykkja slíkt.
Tryggingafé:
Ef leigjandi hefur greitt leigusala tryggingafé ber leigusalanum að endurgreiða það við lok leigutímans. Undir venjulegum kringumstæðum má leigusalinn ekki ráðstafa fénu eða taka af því nema með samþykki leigjanda. Hinsvegar, ef dómur hefur fallið um bótaskyldu leigjanda, til dæmis vegna tjóns á húsnæðinu, getur leigusali tekið af fénu. Einnig má hann ráðstafa því vegna ógreiddrar leigu. Ef leigusali ætlar sér að gera kröfu í tryggingaféð skal hann gera það sem fyrst og ekki síðar en tveimur mánuðum frá lokum leigutímans.
Ef leigjandi og leigusali eru ekki sammála um bætur vegna skemmda á húsnæðinu skal byggingafulltrúi meta tjónið. Byggingafulltrúar starfa á vegum sveitarfélaganna og hægt er að komast í samband við þá hjá viðkomandi sveitarfélagi. Aðilar mega þó alltaf krefjast þess að dómkvaddir matsmenn meti tjónið, innan tveggja mánaða frá því að byggingafulltrúi skilaði niðurstöðu sinni.
Ef ágreiningur er enn fyrir hendi er hægt að skjóta honum til kærunefndar húsaleigumála sem er til húsa í félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Einnig getur leigjandi farið fram á endurgreiðslu tryggingafjárs, eða leigusali framið fram á bætur vegna tjóns, fyrir dómstólum.

