Húsaleigubætur

Íbúar í leiguhúsnæði geta átt rétt á húsaleigubótum hvort sem þeir leigja félagslegt húsnæði eða á almennum markaði. Réttur til húsaleigubóta fer eftir tekjum einstaklingsins.

Umsókn og reglur

  • Umsókn um húsaaleigubætur á að skila til þess sveitarfélags þar sem umsækjandi á lögheimili.
  • Umsókn þarf að endurnýja í upphafi hvers árs.
  • Eyðublöð fást á skrifstofum sveitarfélaganna og á vef velferðarráðuneytis en sum sveitarfélög hafa útbúið sérstök eyðublöð.
  • Húsaleigusamningi þarf að þinglýsa sé ætlunin að sækja um húsaleigubætur. Það er gert á sýsluskrifstofum landsins.
  • Sum sveitarfélög veita sérstakar húsaleigubætur til þeirra sem búa við erfiðar félagslegar og fjárhagslegar aðstæður. Sækja þarf um þessar bætur hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna. Sérstakar húsaleigubætur og sveitarfélög sem þær bjóða
  • Til að eiga rétt á húsaleigubótum þarf umsækjandi að eiga lögheimili í húsnæðinu. Námsmenn er sækja nám í annað sveitarfélag eru undanþegnir þessu skilyrði.
  • Bætur eru ekki greiddar vegna leigu á herbergi með sameiginlegum aðgangi að eldhúsi og snyrtingu, né íbúða í atvinnuhúsnæði. Undanþegnir frá þessum skilyrðum eru:
    1. Námsmenn sem leigja á stúdentagörðum eða á heimavist.
    2. Fatlaðir sem leigja á sambýlum.
  • Húsaleigubætur eru reiknaðar út frá leiguupphæð, fjölskylduhögum, tekjum og eignum.
  • Húsaleigubætur eru skattfrjálsar en framtalsskyldar.
  • Umsækjandi um húsaleigubætur getur kært afgreiðslu umsóknar til úrskurðarnefndar um félagsþjónustu sveitarfélags ef honum finnst ekki rétt að málum staðið.



Hér má finna almennt um húsaleigubætur, eyðublöð, reikniforrit og bækling




Til baka, Senda grein, Prenta greinina