-
Eitt af skilyrðum þess þegar sótt er um atvinnuleyfi fyrir ríkisborgara utan EES, ásamt ríkisborgurum Rúmeníu og Búlgaríu, er að sýna fram á tryggt húsnæði þann tíma sem atvinnu- og dvalarleyfið nær til.
-
Ef viðkomandi leigir íbúð þarf hann að skrifa undir leigusamning til þess að eiga rétt á húsaleigubótum.
-
Þegar kemur að því að leigja íbúð þarf að huga að mörgu eins og til dæmis staðsetningu íbúðarinnar með tilliti til vinnustaðar, leiguupphæð sem þarf að greiða, hvort viðkomandi sé tilbúinn til þess að leigja með öðrum og svo framvegis.
-
Þegar leigt er húsnæði er hægt að leigja einbýlishús, leigja í fjölbýlishúsi (til dæmis í blokk), leigja herbergi, og leigja með einhverjum íbúð eða hús. Leiguverð er mismunandi og fer það eftir staðsetningu, stærð og gerð húsnæðisins.
-
Það er dýrast að leigja næst miðbænum í Reykjavík en leigan lækkar svo yfirleitt eftir því sem fjær dregur. Íbúðarverð utan höfuðborgarsvæðisins er þannig yfirleitt töluvert lægra en í miðbæ Reykjavíkur.