Tannlæknar
Tannlæknar
-
Tannlæknar reka eigin stofur og greiðir sjúklingur fyrir unnin verk eftir gjaldskrá.
-
Börn og unglingar, 17 ára og yngri, eiga kost á einni skoðun á ári hjá tannlækni sem er endurgreidd að fullu. Auk þess tekur Tryggingastofnun þátt í öðrum forvörnum, svo sem röntgenmyndatökum, flúormeðferð og tannhreinsun, fyrir einstaklinga sem eru 17 ára og yngri.
-
Fyrir tannlækningar 17 ára barna og yngri, aðrar en gullfyllingar og brúargerð, greiða sjúkratryggingar 75% af kostnaði.
-
Serstakar reglur gilda um þáttöku almannatrygginga í tannlæknakostnaði fyrir elli- og örorkulífeyrisþega og vegna tannréttinga barna.
-
Tannlæknavakt er í síma 575-0505. Vefsíða: http://www.tannsi.is/neydarvakt-tfi/
Skólatannlæknar í Reykjavík
-
Gjaldskrá skólatannlækna í Reykjavík er lægri en gjaldskrá einkatannlækna. Sjúklingur greiðir 25% af kostnaði hjá skólatannlæknum. Þegar börn á skólaskyldu aldri í Reykjavík sækja til einkatannlækna þá endurgreiðir Tryggingastofnun 75% kostnaðar við forvarnir en 60% vegna annarskonar meðferða, svo sem viðgerða.
-
Athugið að endurgreiðslur Tryggingastofnunar miðast við gjaldskrá sem heilbrigðisráðherra gefur út. Verðlagning tannlækna er hins vegar frjáls. Í þeim tilvikum sem gjaldskrá tannlækna er hærri en gjaldskrá ráðherra greiðir sjúklingurinn mismuninn að fullu.
Tannréttingar
Tryggingastofnun tekur þátt í kostnaði við tannréttingar samkvæmt ákveðnum reglum:
- Vegna alvarlegustu tilvika, s.s. klofins góms eða verulegrar tannvöntunar greiðir Tryggingastofnun 95% kostnaðar samkvæmt gildandi gjaldskrá ráðherra
-
Vegna annarra alvarlegra tilvika sem krefjast meðferðar með spöngum: Vegna einstaklinga sem byrja tannréttingarmeðferð með spöngum, á að minnsta kosti 10 tennur og að minnsta kosti annars góms, fyrir 21 árs aldur, og ekki hafa áður notið þátttöku Tryggingastofnunar við tannréttingar, veita sjúkratryggingar styrk að upphæð allt að 150.000 kr. Styrkurinn greiðist í þremur jöfnum hlutum á þremur árum.
-
Ferðakostnaðarreglur (2 ferðir á ári til lækninga): Sækja þarf um ferðastyrk til læknasviðs Tryggingastofnunar, Laugavegi 114, 150 Reykjavík.
Sjúkratryggingar taka aðeins þátt í ferðakostnaði vegna alvarlegustu tilfella. Athugið að í öllum tilvikum þarf að sækja um þátttöku Tryggingastofnunar og sækja þarf sérstaklega um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar.
Þrjár leiðir til að fá reikninga endurgreidda:
-
Sjúklingur borgar fullt gjald hjá tannlækni og fær svo sjálfur hluta gjaldsins endurgreitt hjá Tryggingastofnun eða umboðum hennar með því að framvísa reikningnum.
-
Flestir tannlæknar bjóða sjúklingum sínum að borga aðeins sinn hlut af upphæðinni og sjá svo sjálfir um að innheimta mismuninn hjá Tryggingastofnun.
-
Með því að senda reikninga til Tryggingastofnunar, eða umboða hennar, og gefa upp nafn, kennitölu og reikningsnúmer sem leggja á inn á. Þá borgar sjúklingurinn sjálfur fullt gjald hjá tannlækninum, eins og í númer 1, og fær mismuninn borgaðan hjá Tryggingastofnun.
Nánari upplýsingar á vef Tryggingastofnunar
Vert að skoða
Hér er hægt að finna tannlækni sem starfar í nágrenni við þig.
Nánari upplýsingar á vef Tryggingarstofnunar ríkisins
Eyðublað fyrir endurgreiðslu:
Beiðni um endurgreiðslu tannlæknakostnaðar


