Sjúkrahús og bráðamóttaka

Innlögn á sjúkrahús / slysa- og bráðamóttaka

Bráða- og slysamóttökur eða slysadeildir eru á flestum heilsugæslustöðvum eða sjúkrahúsum. Þar er þeim sinnt sem hafa slasast eða eru bráðveikir eða slösuðum sem fluttir eru þangað með sjúkrabíl og þeim sem sendir hafa verið þangað til frekari athugunar eða meðferðar af læknum. Þjónustan er veitt allt árið. Neyðarnúmerið 112 svarar öllum símtölum vegna neyðartilvika og aðstoðarbeiðna og sinnir allri neyðarþjónustu, allan sólarhringinn, allt árið um kring.




  • Innlögn á sjúkrahús verður einungis fyrir milligöngu læknis. Í bráðatilfellum getur sjúklingur þó leitað beint til sjúkrahúss.
  • Þeir sem njóta almannatrygginga (eru sjúkratryggðir) eiga rétt á ókeypis sjúkrahúsavist.
  • Vaktaþjónusta heimilislækna er á heilsugæslustöðvum alls staðar á landinu. Á höfuðborgarsvæðinu er slík þjónusta á Læknavaktinni í síma 1770.
  • Þegar um börn er að ræða má einnig hafa samband við Barnalæknavakt í Domus Medica í síma 563-1010.
  • Sjúkrabílar sjá um flutninga á slösuðu og veiku fólki sem ekki kemst sjálft ferða sinna. Upplýsingar um símanúmer eru fremst í símaskrá. Neyðarnúmer fyrir allt landið er 112.

Sjá lista yfir sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir



 

Orðskýringar

Tengt efni


Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.