Evrópska sjúkratryggingakortið
Evrópska sjúkratryggingakortið er kort sem gildir í öllum EES-ríkjunum og Sviss. Kortið er til staðfestingar á því að handhafi þess sé sjúkratryggður á Íslandi (eða í einhverju öðru ríki innan EES) og á korthafi rétt á allri heilbrigðisþjónustu sem telst nauðsynleg í því EES-ríki þar sem hann er staddur.
Korthafi á að geta fengið þá læknisþjónustu og þau lyf sem hann þarf til að geta lokið dvöl sinni á öruggan hátt. Hann á ekki að þurfa að snúa aftur til heimalands síns fyrr en áætlað var.
-
Þegar nota á kortið, til dæmis á heilsugæslustöð, á sjúkrahúsi eða í apóteki, má búast við því að korthafi þurfi jafnframt að framvísa vegabréfi eða öðrum persónuskilríkjum til staðfestingar á að korthafi sé sá sem hann segist vera.
-
Kortið gildir aðeins innan hins opinbera sjúkratryggingakerfis í dvalarlandinu. Það gildir því aðeins hjá læknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum sem starfa innan þess en ekki á einkareknum sjúkrastofnunum. Því borgar sig að leita upplýsinga um hvort læknir eða sjúkrastofnun sem leita á til sé einkarekin eða starfi innan opinbera sjúkratryggingakerfisins.
-
Athuga þarf að kortið gildir ekki í þeim tilvikum þar sem farið er sérstaklega til annars EES-ríkis í þeim tilgangi að fá læknisaðstoð eða aðra heilbrigðisþjónustu.
-
Hægt er að sækja um evrópska sjúkratryggingakortið á vef Tryggingastofnunar ríkisins og er kortið þá sent sjálfkrafa á lögheimili umsækjanda. Það tekur 3-4 daga. Jafnframt er hægt að koma við í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar í Reykjavík, að Laugavegi 114 (kort), og fá kortið afhent. Þá er sótt um á staðnum og kortið útbúið um leið.
Kostnaður
-
Korthafi greiðir sama gjald fyrir heilbrigðisþjónustu og þeir sem eru tryggðir í viðkomandi landi en Tryggingastofnun ríkisins greiðir það sem upp á vantar. Hins vegar getur þjónustan sem veitt er verið ólík á milli ríkja og gjöldin sem eru innheimt fyrir hana verið mishá eftir löndum.
-
Sumstaðar greiða örorkulífeyrisþegar og ellilífeyrisþegar lægra gjald en aðrir fyrir heilbrigðisþjónustu. Þeir gætu þurft að sýna fram á stöðu sína til þess að njóta aukinna réttinda, til dæmis með því að framvísa örorkuskírteini.
Gildistími
-
Gildistími sjúkratryggingakortsins er yfirleitt hálft ár í senn (6 mánuðir) og því þarf að sækja um það reglulega til að viðhalda réttindum sem kortið veitir. Ef kort týnist eða gleymist þegar farið er erlendis (til annars EES-ríkis) er hægt að fá sent sérstakt bráðabirgðavottorð frá Tryggingastofnun.
-
Ef korthafi telst ekki lengur sjúkratryggður á Íslandi, til dæmis vegna brottflutnings eða vinnu erlendis, fellur kortið úr gildi. Athuga þarf að sérreglur gilda um námsmenn. Þá geta einstaklingar sem starfa tímabundið í öðru EES-ríki fyrir vinnuveitanda á Íslandi sótt um áframhaldandi tryggingu hjá Tryggingastofnun.
Sjá nánar á vef Tryggingastofnunar ríkisins
Sækja um evrópskt sjúkratryggingakort á netinu

