Læknisskoðun vegna dvalarleyfis

Læknisskoðun vegna dvalarleyfis

  • Með umsókn um dvalarleyfi á Íslandi eiga þeir sem kom frá löndum utan EES svæðisins, að utanskildum Bandaríkjunum, Kanada, Sviss, Ástralíu og Nýja Sjálandi, að skila inn heilbrigðisvottorði til Útlendingastofnunar. Ríkisborgarar Rúmeníu og Búlgaríu þurfa einnig að skila inn heilbrigðisvottorði líkt og þeir sem koma utan EES svæðisins.
  • Heilbrigðisvottorð fæst að undangenginni læknisskoðun á Íslandi eða hafi umsækjendur um atvinnu- og dvalarleyfi fullgilt erlent læknisvottorð, að mati íslensks læknis og vottorðið er yngra en þriggja mánaða, þarf viðkomandi ekki að fara í læknisrannsókn hér á landi.
  • Læknisskoðunin er til þess að hægt sé útiloka ýmsa smitsjúkdóma, til dæmis berkla og lifrarbólgu, svo og sjúkdóma af völdum sníkjudýra í meltingarvegi, sem algengir eru sumstaðar erlendis en aftur á móti sjaldgæfir hér á landi.
  • Auk læknisskoðunar er yfirleitt tekin blóð- og þvagprufa, röntgenmynd af lungum, gert berklapróf og beðið um saursýni.
  • Miklu skiptir að fá greiningu og lækningu ef sjúkdómar eru fyrir hendi. Ef sjúkdómur greinist veitir spítalinn meðferð og lyf.
  • Vinnuveitandinn, eða sá sem sækir um dvalarleyfið, greiðir fyrir læknisskoðunina. Ef vinnuveitandi óskar sérstaklega eftir læknisrannsókn þá á hann að greiða fyrir hana sjálfur.
  • Mikilvægt er að útlendingar fari í læknisskoðun um leið og komið er til landsins. Þetta á sérstaklega við um þá sem ætla út á land, því læknisskoðun vegna dvalarleyfis á að fara fram á stofnunum sem eru staðsettar í Reykjavík.
  • Að lokinni læknisskoðun sendir læknir staðfestingarbréf til Útlendingastofnunar.

Hvar fer læknisskoðun vegna dvalarleyfis fram?

  • Læknisskoðun fyrir fullorðna fer fram á Göngudeild sóttvarna á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, og fyrir börn á Göngudeild smitsjúkdóma á Barnaspítala Hringsins við Hringbraut.
  • Í undantekningartilfellum má læknisskoðun vegna dvalarleyfis fara fram á öðrum heilsugæslustöðvum en nauðsynlegt er að það sé gert í samráði við áðurnefndar stofnanir. Best er því að hafa samband við stofnanirnar í Reykjavík, þar sem tímapantanir fara fram, og biðja um upplýsingar.

Göngudeild sóttvarnaGöngudeild sóttvarna (kort)

Álfabakki 16 109 Reykjavík

Sími (+354) 585-1390

Barnaspítali HringsinsBarnaspítali Hringsins (kort)

Hringbraut 101 Reykjavík

Sími (+354) 543-3700

Vert að skoða

Upplýsingar um læknisskoðanirnar er að finna á vefsíðu Landlæknis

Verklagsreglur vegna atvinnu- og dvalarleyfa

Vefur Heilsugæslunnar



 

Orðskýringar

Tengt efni


Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.