Ung- og smábarnavernd
-
Ungbarnavernd er reglubundið eftirlit með með vexti og þroska barna frá fæðingu og þar til barnið verður 6 ára.
-
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu er foreldrum boðið upp á heimavitjanir en þá koma hjúkrunarfræðingar frá heilsugæslustöðinni heim til barnanna. Þess vegna eru foreldrar beðnir um að hafa samband við sína heilsugæslustöð fljótlega eftir að barn fæðist. Fjöldi heimsókna fer eftir samkomulagi en algengt er að það séu nokkrar heimsóknir fyrstu 3 mánuðina.
-
Hjúkrunarfræðingurinn fylgist með heilsu barnsins og veitir ráðgjöf, til dæmis um brjóstagjöf, matarræði, slysavarnir og fleira.
-
Þegar barnið er 6 vikna fer það í fyrstu læknisskoðunina á heilsugæslustöðinni og síðan reglulega í eftirlit fram að skólaaldri.
-
Í læknisskoðun er fylgst með vexti og þroska barnanna, þau mæld og vigtuð og bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta, mænuveiki, heilahimnubólgu, hettusótt, rauðum hundum og mislingum.
-
-
Foreldrar geta líka haft samband við hjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd fyrir utan skipulagðar skoðanir til að fá ráðgjöf og fræðslu.
-
Ung- og smábarnavernd er ókeypis fyrir börn sem eru sjúkratryggð á Íslandi en börn eru sjúkratryggð með foreldrum eða forráðmönnum. Greiða þarf 4.100 kr fyrir hverja komu í ungbarnavernd fyrir börn sem ekki eru sjúkratryggð. Gjöld fyrir bóluefni greiðast til viðbótar við komugjald.
-
Fullt gjald fyrir skoðun í ungbarnavernd á heilsugæslustöð og á Miðstöð heilsuverndar barna fyrir þá sem ekki eru sjúkratryggðir hér á landi:
-
-
6 vikna skoðun kr 5.400,-
-
3ja mán. skoðun kr. 5.400,- + DPT + Hib+Polio kr. 7.500,- samt kr. 12.900,-
-
5 mán. skoðun kr. 5.400,- + DPT + Hib+Polio kr. 7.500,- samt.kr. 12.900,-
-
6 mán. skoðun kr. 5.400,-
-
8 mán. skoðun kr. 5.400,-
-
10 mán. skoðun kr. 5.400,-
-
12 mán. skoðun kr. 5.400,- + DPT + Hib + Polio kr. 7.500,- samt. kr. 12.900,-
-
18 mán. skoðun kr. 5.400,- + MMR (Priorix) kr. 2.000,- samt. kr. 7.400,-
-
3½ árs skoðun kr. 5.400,-
-
5 ára viðtal kr. 5.400,- + DPT (Di-te-kit) kr. 2.100,- Samt. kr. 7.500,-
-
Vitjun í heimahús kr. 5.800,-
Til baka,
Senda grein,
Prenta greinina