Skólaheilsugæsla
-
Þegar barnið er orðið sex ára byrjar það að ganga í skóla.
-
Í skólanum er hjúkrunarfræðingur sem hægt er að leita til ef barni líður illa eða ef það meiðir sig.
-
Hjúkrunarfræðingurinn sér einnig um að fylgjast með heilsu skólabarnanna. Hún mælir til dæmis sjón og heyrn, framkvæmir bólusetningar, fræðir börnin um heilsu og veitir ráðgjöf.
-
Samkvæmt lögum eiga heilsugæslustöðvar að annast heilsugæslu í skólum.
-
Skólaheilsugæsla er ókeypis.

