Mæðravernd/meðgönguvernd
Öllum verðandi mæðrum stendur til boða mæðravernd, það er eftirlit á meðgöngu.
-
Það sem felst í mæðravernd er að konur mæta reglulega til skoðunar á meðgöngutímanum þar sem fylgst er með meðgöngunni með tillliti til heilsu móður og barns.
-
Boðið er upp á meðgönguvernd á öllum heilsugæslustöðvum landsins og eru það ljósmæður ásamt heimilislæknum sem sinna meðgönguverndinni. Sumar konur kjósa að fara til kvensjúkdómalæknis á stofu, til að fá staðfesta þungun, en almenn mæðraskoðun fer ekki fram á stofu.
-
Meðgönguvernd er þeim konum sem eru sjúkratryggðar á Íslandi að kostnaðarlausu en þær konur sem ekki eru sjúkratryggðar þurfa að greiða 5.400 kr fyrir hverja komu í mæðravernd á heilsugæslustöð.
-
Viðtal og skoðun í upphafi meðgönguverndar beinist að því að finna þær konur sem þurfa á sérhæfðari og nákvæmari ummönnun að halda.
-
Meðgönguvernd á að fara fram í umhverfi sem auðveldar konunni að ræða viðkvæm mál eins og heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi, geðsjúkdóma, neyslu ólöglegra vímuefna eða önnur félagsleg vandamál. Mikilvægt er að ræða slík mál við ljósmóður eða lækni.
-
Í fystu skoðun er verðandi móður / foreldrum veittar upplýsingar um meðgönguverndina og hvaða valkostir standa þeim til boða. Gefnar eru almennar upplýsingar um framkvæmd meðgönguverndar og heilbrigða lífshætti á meðgöngu. Bæði skriflegar og munnlegar upplýsingar eru gefnar en ef konan getur ekki lesið eða talað íslensku þá á hún rétt á því að fá túlk samkvæmt lögum nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga.
-
Algengt er að fyrsta skoðun fari fram á 8.-12. viku Meðgöngu.
-
Þarfir barnshafandi konu og verðandi foreldra eru metnar í fyrstu skoðun og endurmetnar síðan í hverri skoðun eftir þörfum.
Hvar er hægt að fæða börn á Íslandi?
-
Ljósmæður í mæðravernd gefa upplýsingar um hvar hægt er að fæða börn á Íslandi.
-
Flestar fæðingar fara fram á sjúkrahúsum en einnig hefur verið hægt að fæða börn heima, það er á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, en það er oft skilyrði að meðgangan sé eðlileg og að heilsa móður og barns sé í lagi.
Nánari upplýsingar um meðgönguvernd er hægt að fá á heilsugæslustöðvum eða í Miðstöð mæðraverndar.
Miðstöð mæðraverndar
Þönglabakka 1, 109 Reykjavík
Sími: 585-1400, Fax: 585-1414
Netfang: mm@mm.hg.is
Almennur þjónustutími: alla virka daga frá kl. 8:30 til 16:00
Sjá heimasíðu Ljósmæðrafélags Íslands (www.ljosmodir.is) um meðgöngu, fæðingar, sængurlegu og fleira (einnig á pólsku)
Á Miðstöð mæðraverndar er einnig hægt að nálgast fræðsluefni á erlendum tungumálum meðal annars um mataræði á meðgöngu, reykingar, áfengi og vímuefni á meðgöngu og brjóstagjöf.
Fræðsluefni á nokkrum tungumálum má nálgast á heimasíðu Heilsugæslunnar

