Heilsugæslustöðvar
- Heilsugæslustöðvar eru um allt land og í öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins. Þar er veitt öll almenn heilbrigðisþjónusta og þangað leitar fólk jafnan fyrst vegna veikinda eða annarra heilsufarsvandamála.
- Fólk á rétt á að leita til hvaða heilsugæslustöðvar sem er en æskilegt er að snúa sér til heilsugæslustöðvar sem er næst heimili viðkomandi.
Sjá staðsetningu heilsugæslustöðva hér
Sjá upplýsingar um gjaldskrá heilsugæslunnar hér
-
Auk almennrar læknisþjónustu sinna heilsugæslustöðvar mæðravernd, ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæslu og hjúkrun í heimahúsum.
-
Börn, undir 18 ára aldri, eru undanþegin komugjaldi á heilsugæslur og gjaldi vegna vitjana lækna í heimahús. Ósjúkratryggð börn greiða fullt gjald.
-
Upplýsingar um heilbrigðismál og staðsetningu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu má finna á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á dönsku, ensku og pólsku.
-
Upplýsingar um staðsetningu heilsugæslustöðva um land allt eru á vef velferðarráðuneytisins.

