Heilsa
Allir eiga rétt á neyðaraðstoð hjá hinu opinbera heilbrigðiskerfi á Íslandi.
Neyðaraðstoð, alvarleg slys og veikindi - 112
|
|---|
Heilsugæslustöðvar eru um allt land og í öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins. Þar er veitt öll almenn heilbrigðisþjónusta og þangað leitar fólk jafnan fyrst vegna veikinda eða annarra heilsufarsvandamála.
Læknisþjónusta
Heilsugæslustöðvar og læknisþjónusta - Heilsugæslustöðvar eru um allt land og í öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins. Þar er veitt öll almenn heilbrigðisþjónusta og þangað leitar fólk jafnan fyrst vegna veikinda eða annarra heilsufarsvandamála. Upplýsingar um staðsetningu heilsugæslustöðva og hlutverk þeirra og starfsemi, meðal annars með tilliti til mæðraverndar, ungbarnaverndar og skólaheilsugæslu
Innlögn á sjúkrahús og bráðamóttaka - Upplýsingar um slysa- og bráðamóttökur og almennt um hvernig innlögn á sjúkrahús gengur fyrir sig
Læknisþjónusta utan opnunartíma heilsugæslustöðva - Upplýsingar um hvert fólk getur leitað eftir að hefðbundnum opnunartíma heilsugæslustöðva lýkur á kvöldin eða um helgar
Heilsuvernd rekur yfirgripsmikla heilbrigðisþjónustu. Vefsíða fyrirtækisins er á íslensku, ensku og pólsku
Húð og kynsjúkdómadeild - Upplýsingar um hvert skal leita ef grunur leikur á húð-, kyn- og smitsjúkdómum
Önnur þjónusta og heilbrigðsmál
Tannlæknaþjónusta - Almennar upplýsingar um tannlækna og hvernig hægt er að hafa samband við tannlæknavaktina, nayðarvakt Tannlæknafélags Íslands
Læknisskoðun vegna dvalarleyfis - Upplýsingar um læknisskoðun vegna dvalarleyfis, hverskonar læknisskoðunar er krafist og hvar hún fer fram
Sjúkratryggingar - Upplýsingar um sjúkratryggingar, annars vegar fyrir ríkisborgara EES- og EFTA-ríkjanna og hinsvegar fyrir aðra en fyrrnefnda ríkisborgara
|Lyf og apótek - Almennar upplýsingar um lyf og lyfjaverslanir á Íslandi
Túlkun innan heilbrigðisþjónustunnar - Sjúklingur sem ekki talar íslensku á samkvæmt lögum rétt á túlkun upplýsinga um heilsufar sitt, fyrirhugaða meðferð og önnur hugsanleg úrræði. Nánari upplýsingar um túlkun innan heilbrigðisþjónustunnar
Heilsuvernd og forvarnir - Upplýsingar um heilsuvernd og forvarnir og tenglar á efni sem Lýðheilsustöð hefur þýtt um forvarnir, heilsuvernd og fleira á mörg tungumál

