Fréttir

Lágmarkslaun hækka í 157 þúsund

27.2.2009 Fréttir

Samkomulag hefur náðst á milli Samtaka atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars. Ákveðið var að fresta ákvörðun um endurskoðun kjarasamninga um allt að fjóra mánuði. Lágmarkslaun hækka þó í 157 þúsund á mánuði eða um 12 þúsund krónur.

Samningsaðilar telja að frestunin sé mikilvæg stöðugleika í efnahagslífinu. Þannig geti skapast aðstæður til að hratt dragi úr verðbólgu og vextir geti lækkað. Grunnatvinnuleysisbætur hækkuðu á dögunum í 149.500 krónur og því hefði verið hagstæðara fyrir suma að hætta að vinna.

Í sameiginlegum áherslum SA og ASÍ segir að á næstu dögum og vikum þurfi að grípa til margvíslegra aðgerða til þess að verja hag heimilanna og fjölga störfum.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að samtökin séu sátt við að náðst hafi að fresta endurskoðun samninganna fram í júní. Eina hækkunin sem verði nú sé hækkun á lágmarkstekjutryggingu fyrir dagvinnu, sem verði 157 þúsund krónur á mánuði. „Það var nauðsynlegt til þess að skapa ótvíræðan hvata fyrir fólk til að vinna. Í núverandi atvinnuástandi er alltaf hætta á því að ákveðinn hópur vilji fremur þiggja atvinnuleysisbætur en vinna þótt langflestir kjósi að vinna."

Frétt tekin af www.ruv.is



Senda grein