Evrópskt sjúkratryggingakort
Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Kortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki.
Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss. Um kortið og notkun þess gilda EES-reglugerðir um almannatryggingar og reglur sem settar hafa verið á grundvelli þeirra.
Evrópska sjúkratryggingakortið gildir aðeins í hálft ár (sex mánuði) og því þarf að sækja um það reglulega.
Sjá nánar um evrópska sjúkratryggingakortið hér
Vefur Tryggingastofnunar ríkisins
