Fréttir

Foreldrar kynni sér samræmdar reglur um röskun á skólastarfi vegna óveðurs

24.2.2009 Fréttir

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) hefur gefið út samræmdar reglur fyrir grunnskóla og foreldra um viðbrögð við því þegar skólastarf á höfuðborgarsvæðinu raskast vegna veðurs og ófærðar.

Reglurnar hafa verið gefnar út á íslensku, ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og taílensku.

Hvatinn að gerð reglnanna var endurtekin illviðri á höfuðborgarsvæðinu veturinn 2007 til 2008 og ítrekaðar raskanir á samgöngum og skólastarfi vegna þeirra.

Reglurnar eru birtar á vefsíðum skólanna og eru foreldrar beðnir að kynna sér þær vel. 

Einnig má nálgast reglurnar hér - Röskun á skólastarfi vegna óveðurs          

 



Senda grein