Losað um séreignarsparnað
Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem heimilar að losað verði um séreignasparnað að hluta. Frumvarpið hefur verið lagt fyrir Alþingi og bíður afgreiðslu þar. Samkvæmt því getur hver og einn sem á frjálsan séreignasparnað tekið út sem svarar 1 milljón króna. Hægt verður að sækja um úttektarheimild frá og með 1. mars 2009 til 1. október 2010.
Það fé sem lagt er í séreign er undanþegið skatti en greiða þarf af því skatt þegar það er tekið út. Vörsluaðilar séreignarsparnaðar munu annast skil á staðgreiðslu, en sú fjárhæð sem eftir stendur þegar staðgreiðslan hefur verið dregin frá dreifist á allt að 12 mánuði. Búast má við að heildarfjárhæð sem hver og einn einstaklingur fær úr séreignasjóði geti numið um 70.000 krónum á mánuði í 9 mánuði. Útgreiðsla hefur ekki áhrif á upphæð atvinnuleysisbóta eða annarra bóta, til að mynda úr almannatryggingakerfinu.
Frumvarp um séreignarsparnað (althingi.is)
Frétt tekin af www.island.is
