Fréttir
Tlusty Czwertek - feiti fimmtudagur
Pólsk veisla
Félag nýrra Íslendinga stendur fyrir pólskri veislu sunnudaginn 22. febrúar næstkomandi. “Tlusty Czwertek” (feiti fimmtudagur) verður haldinn frá klukkan 16.00 til 18.00 í Þorpinu (gamla tónlistarskólanum) við Þjóðbraut 11 á Akranesi. Boðið verður upp á alvöru pólskan mat og tónlist og aðstandendur lofa svaka stuði.
Allir velkomnir og ókeypis inn.
Viðburðurinn er styrktur af Menningarráði Vesturlands og allar nánari upplýsingar gefur Krystyna í síma 863-5655
