Fréttir

979 einstaklingar fengu íslenskan ríkisborgararétt á árinu 2008

12.2.2009 Fréttir

Flestir þeirra 979 einstaklinga sem fengu veittan íslenskan ríkisborgararétt á liðnu ári voru pólskir ríkisborgarar, 166 talsins. Næst flestir komu frá Filippseyjum, eða 125 og 106 einstaklingar höfðu serbneskt ríkisfang fyrir. Taílendingar sem fengu íslenskt ríkisfang voru 61 talsins og 55 Víetnamar. Þá fengu 37 einstaklingar frá Rússlandi íslenskan ríkisborgararétt á árinu.

Af þessum nýju íslensku ríkisborgurum voru flestir á aldrinum 30-39 ára eða 287 einstaklingar og börn undir tíu ára aldri voru 160 talsins.

Sjá nánar í vefriti dóms- og kirkjumálaráðuneytisins (1. tbl. 4. árg. febrúar 2009)



Senda grein