Fréttir

Skattframtal 2009

Ari Jónsson 10.2.2009

Framtölum einstaklinga, þar með talið þeirra sem látist hafa á árinu 2008, skal skila til skattstjóra eigi síðar en 23. mars 2009.

Unnt er að sækja um aukinn skilafrest á vef skattstjóra, www.skattur.is Lengdum skilafresti lýkur dagana 30. mars til 1. apríl nk., samkvæmt slembidreifingu.

Framtalsskyldir lögaðilar, þar með talin dánarbú sem ekki hafði verið formlega lokið að skipta í árslok 2007, skulu skila framtali til skattstjóra eigi síðar en 31. maí 2009. Gera skal grein fyrir rekstri sameignarfélaga, sem eru ósjálfstæðir skattaðilar, með framtölum eigenda.

Þeir framteljendur, sem af óviðráðanlegum ástæðum, svo sem veikindum eða vegna dvalar erlendis, geta ekki skilað framtali sínu innan ofangreindra fresta, skulu skila framtali sínu svo fljótt sem auðið er og gera grein fyrir ástæðum síðbúina skila með athugasemd á framtalinu.

Form og skilamáti framtala:

Menn skulu gera grein fyrir tekjum sínum á árinu 2008 og eignum í lok þess árs með eftirfarandi hætti:

a)     Á rafrænu skattframtali 2009 (RSK 1.01) á þjónustusíðu á vef skattstjóra, www.skattur.is

b)     Með dulrituðu og undirrituðu skeyti úr framtalsforritum 2009, sem vottuð hafa verið af ríkisskattstjóra.

c)     Á skattframtali 2009 (RSK 1.01), sem ríkisskattstjóri hefur gefið út á pappír.

d)     Á skattframtali 2009 (erlendir starfsmenn) RSK 1.10 (enska) eða RSK 1.13.



 

Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.