Fréttir

Sex nýir ráðherrar í ríkisstjórn

2.2.2009 Fréttir

Ný ríkisstjórn tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Jóhanna Sigurðardóttir er forsætisráðherra og Guðbjartur Hannesson forseti Alþingis.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er félags- og tryggingamálaráðherra, Össur Skarphéðinsson iðnaðar- og utanríkisráðherra, Kristján Möller samgönguráðherra, Steingrímur Sigfússon, fjármála-, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra.

Hlutfall karla og kvenna í nýrri ríkisstjórn er jafnt og er Ísland þriðja landið þar sem svo háttar til. Aðeins þrír ráðherrar fyrri ríkisstjórnar eiga sæti í þeirri nýju. Þá hefur Steingrimur J. Sigfússon áður setið sem ráðherra. Sex nýir ráðherrar eru því í nýju ríkisstjórninni.

  • Skipt verður um yfirstjórn Seðlabanka Íslands og lögum um Seðlabankann  breytt þannig að skipaður verði einn seðlabankastjóri sem ráðinn verður á faglegum forsendum. Þetta er hluti af verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar sem kynnt var í dag.

Komið verður á fót peningastefnuráði sem fer með ákvarðanir um beitingu allra stjórntækja bankans, það er, stýrivaxta, bindiskyldu og lausafjárreglna. Þá verður hafin endurskoðun á peningamálastefnu Seðlabankans.

Tekið af  www.ruv.is



Senda grein