Fréttir

Aðgerðir stjórnvalda vegna aðstæðna á íslenskum fjármálamarkaði

7.10.2008 Fréttir

1) Alþingi samþykki lög 6. október 2008 vegna erfiðleika íslenskra banka. Fjármálaeftirliti ríkisins er nú heimilt að taka yfir stjórn bankanna að hluta eða öllu leyti.

2) Með lögunum er verið að tryggja að almenningur hafi aðgengi að allri nauðsynlegri bankaþjónustu. Allar innistæður einstaklinga í íslenskum bönkum og sparisjóðum eru tryggðar af ríkissjóði Íslands.

  • Nánari upplýsingar veitir viðskiptaráðuneytið í síma 545 8800.

3) Lögin leyfa að Íbúðalánasjóður yfirtaki íbúðarlán bankanna bæði innlend og erlend. Ef Íbúðalánasjóður yfirtekur lánin er í einhverjum tilvikum mögulegt að semja um afborganir og jafnvel greiðslufrest.

  • Nánari upplýsingar veitir Íbúðalánasjóður í síma 569 6900.

Í félags- og tryggingamálaráðuneyti hefur verið sett upp nýtt vefsvæði (http://www.felagsmalaraduneyti.is/upplysingar) þar sem fólk getur fengið upplýsingar vegna aðstæðna á fjármálamarkaði.

Allar stofnanir félags- og tryggingamálaráðuneytisins veita upplýsingar á íslensku og ensku. Vinnumálastofnun veitir einnig upplýsingar á pólsku og Fjölmenningarsetur á ensku, pólsku, serbnesku/króatísku og taílensku.

  • Vinnumálastofnun veitir upplýsingar meðal annars um atvinnuleysisbætur og greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa í síma 582 4900 eða 515 4850.
  • Tryggingastofnun ríkisins annast upplýsingagjöf um réttindi í almannatryggingakerfinu og áhrif lífeyrisgreiðslna á þær í síma 800 6044. 
  • Vinnueftirlit ríkisins annast upplýsingagjöf og eftirlit með vinnuumhverfi meðal annars vegna streitu og eineltis í síma 550 4600.
  • Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna veitir ráðgjöf um úrræði í fjármálum í þágu þeirra sem þurfa að endurskoða fjármál heimila eða einstaklinga og í þágu einstaklinga í greiðsluerfiðleikum í síma 551 4485. 
  • Fjölmenningarsetur annast ráðgjöf og upplýsingagjöf fyrir innflytjendur og þá sem eru að þjónusta þá um allt land í síma: 450 3090 (íslenska og enska), 450 3094/470 4708 (pólska) 470 4709 (serbneska/króatíska) og 470 4702 (taílenska).
  • Barnaverndarstofa veitir upplýsingar og ráðgjöf um aðbúnað barna í síma 530 2600.



Sjá helstu fréttir varðandi efnahagsástandið

Aðrar fréttir:

Innflytjendur geta ekki flutt launin heim



Senda grein