Fréttir

Breytingar á lögum um útlendinga (nr. 96/2002)

- sem taka gildi 1. ágúst næstkomandi

29.7.2008 Fréttir

Þann 1. ágúst munu breytingar á lögum um útlendinga (nr. 96/2002) taka gildi.

Ríkisborgarar innan EES

Í kjölfar breytinganna munu ríkisborgarar innan EES-svæðisins (EES/EFTA) ekki þurfa dvalarleyfi á Íslandi en þurfa þess í stað að skrá dvöl sína og tilgang dvalar sinnar hér á landi hjá Þjóðskrá

Ríkisborgarar ríkja utan EES, sem eru aðstandendur EES-ríkisborgara, þurfa áfram að sækja um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun eins og áður.

Ríkisborgarar utan EES

Breytingarnar ná einnig til þeirra sem koma frá ríkjum utan EES (EES/EFTA) og dvalarleyfum tengdum atvinnuþátttöku.

Eftir breytingarnar munu dvalarleyfi sem veitt eru á grundvelli atvinnuþáttöku skiptast upp í þrjá flokka; dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, dvalarleyfi fyrir íþróttafólk og dvalarleyfi vegna skorts á vinnuafli.

Þeir sem fengu veitt dvalar- og atvinnuleyfi án takmarkanna (B-leyfi) fyrir breytingarnar halda réttindum sínum og dvöl þeirra mun þannig halda áfram að telja upp í búsetuleyfi. Þeir eiga rétt á fjölskyldusameiningu.

Þeir sem fengu veitt dvalar- og atvinnuleyfi með takmörkunum (C-leyfi) fyrir breytingarnar falla nú, með nýju lögunum, undir dvalarleyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli. Dvöl þeirra mun því ekki telja upp í búsetuleyfi og þeir eiga ekki rétt á fjölskyldusameiningu.

Nánari upplýsingar eru væntanlegar



Senda grein