Úthlutað hefur verið úr Þrjóunarsjóði innflytjendamála

20.1.2012 Fréttir

Þróunarsjóðnum bárust 49 umsóknir en til úthlutunar voru 10 milljónir króna. Ákveðið var að veita styrk til ellefu verkefna.

Hlutverk þróunarsjóðs innflytjendamála er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Að þessu sinni var auglýst sérstaklega eftir þróunarverkefnum sem unnin eru í sveitarfélögum og miða að því að auka aðgengi innflyjenda að samfélaginu annarsvegar og þróunarverkefnum og rannsóknum sem vinna gegn fordómum, auka fjölmenningarlega færni og hvetja til virkrar þátttöku innflytjenda í samfélaginu hinsvegar.

Þau ellefu verkefni sem hlutu styrk eru eftirfarandi:

Rannsókn á birtingarmyndum dulinna fordóma og mismununar í garð innflytjendaUmsækjandi: InterCultural Ísland
Styrkur: 1.000.000

Immigrant secondary school students in Iceland: Successes and challenges
Umsækjandi: Samúel Lefever, Robert Berman og Anna Wozniczka
Styrkur: 800.000

Foreldragáttin – Þýðing á upplýsingavef fyrir foreldra
Umsækjandi: Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar
Styrkur: 1.000.000

Börn og foreldrar (vinnuheiti)
Umsækjandi: Reykjavíkurborg og Barnaverndarstofa
Styrkur: 1.000.000

Móttaka barna og unglinga með annað móðurmál en íslensku í frístundastarf
Umsækjandi: Samtaka í Miðborg og Hlíðum
Styrkur: 500.000

Stuðningur við atvinnuleitendur af erlendum uppruna
Umsækjandi: Akraneskaupstaður
Styrkur: 750.000

Velkominn í Skagafjörð
Umsækjandi: Fjölskylduþjónusta Skagfirðinga
Styrkur: 1.400.000

Söguskjóður og foreldrar af erlendum uppruna
Umsækjandi: Fræðslusvið Dalvíkurbyggðar
Styrkur: 730.900

Eitt samfélag í orði og á borði
Umsækjandi: Rangárþing eystra
Styrkur: 1.400.000

Stuðningur við foreldra sem eru innflytjendur
Umsækjandi: Fjarðarbyggð
Styrkur: 700.000

Stuðningur við nemendur af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra
Umsækjandi: Langanesbyggð
Styrkur: 700.000

Senda grein