Ríkisborgarar Rúmeníu og Búlgaríu þurfa ekki lengur dvalar- og atvinnuleyfi á Íslandi
- Þeir skrá dvöl sína hjá Þjóðskrá Íslands eins og aðrir EES- og EFTA-ríkisborgarar
Nú um áramótin (1. janúar 2012) féll úr gildi fyrirvari sem kvað um á að ríkisborgarar Rúmeníu og Búlgaríu þyrfti atvinnu- og dvalarleyfi vegna búsetu á Íslandi, þrátt fyrir að vera aðildarríki að Evrópusambandinu. Öll ákvæði EES-samningsins og útlendingalaga um ríkisborgara EES- og EFTA-ríkja gilda nú um komu og dvöl ríkisborgara Rúmeníu og Búlgaríu.
Ríkisborgarar Rúmeníu og Búlgaríu sem þegar hafa fengið dvalar- og atvinnuleyfi þurfa ekki að endurnýja sín leyfi. Þeir sem eru að koma hingað til lands í fyrsta skipti skrá dvöl sína hjá Þjóðskrá Íslands, á þartilgerðu eyðublaði, eins og aðrir EES- og EFTA-ríkisborgarar. Þeir sem eiga umsóknir í vinnslu hjá Útlendingastofnun og/eða Vinnumálastofnun fá ekki útgefin leyfi en ber þess í stað að skrá sig hjá Þjóðskrá Íslands. (Sjá upplýsingar um löglega búsetu EES- og EFTA-ríkisborgara)
Tekið af vef Útlendingastofnunar
Sjá upplýsingabæklinginn Fyrstu skref EES- og EFTA-ríkisborgara (Athuga þarf að fyrirvarar sem gerðir eru í bæklingnum um ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu eiga ekki lengur við. Unnið er að uppfærðri útgáfu bæklingsins.)
