Gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu hækka að jafnaði um áramótin

Komugjöld á heilsugæslustöðvar haldast óbreytt

2.1.2012 Fréttir

Að jafnaði munu gjöld sem sjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hækka um 5,3% og tekur breytingin gildi um áramótin. Gjöld hækka mismikið eftir eðli þjónustunnar og þannig haldast komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjald fyrir vitjanir heilsugæslulækna óbreytt en gjald fyrir sjúkraflutninga hækkar um 7,2% (í 5.500 kr.).

Gjöld sem ósjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hækka álíka mikið, eða um 5,32% að jafnaði. Hinsvegar hækkar kostnaður þeirra vegna sjúkraflutninga mikið, fastur kostnaður hækkar úr 8.800 í 35.000 kr. og gjald til Rauða kross Íslands hækkar úr 660 í 2.000 kr. fyrir hvern ekinn kílómetra. Sjúklingur greiðir alltaf að lágmarki fyrir 15 kílómetra þannig lágmarkskostnaður við að fá sjúkrabíl fyrir ósjúkratryggða er 65 þúsund krónur.

Nánari upplýsingar um breytingar á gjaldskrám vegna heilbrigðisþjónustu eru að finna á vef velferðarráðuneytisins – www.velferdarraduneyti.is

Senda grein