Fréttir

Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar

Elsa Arnard 12.5.2010 Heimild

Fjölmenningardagurinn var haldinn í fyrsta sinn í maí á síðasta ári og heppnaðist frábærlega vel, og ákveðið hefur verið að hátíðin verði árviss viðburður. Dagurinn er skipulagður af mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar í samstarfi við samtökin Samhljómur menningarheima. Hátíðin hefst á fjölþjóðlegri skrúðgöngu þar sem gengið verður frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsi Reykjavíkur. Í kjölfarið verður svo haldin fjölþjóðleg hátíð í Ráðhúsinu og Iðnó þar sem boðið verður upp á skemmtiatriði með söng, hljóðfæraleik, dansi frá fjölmörgum þjóðlöndum. Ennfremur verður haldinn markaður þar sem verða kynntar og seldar vörur frá hinum ýmsu löndum

Sjá nánar auglýsingu

 

Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.