Fulltrúar frá taílenska sendiráðinu á Íslandi
Vegabréf fyrir taílensk börn á Íslandi
Fulltrúar frá taílenska sendiráðinu í Danmörku verða á Íslandi 29. og 30. maí n.k til að taka á móti umsóknum um vegabréf og umsóknum um skráningu barna sem fæðst hafa á Íslandi.
Gögn sem þurfa að fylgja með fyrir fullorðna ( eldri en 20 ára)
- Umsókn um vegabréf (til hjá Búddistafélagi Íslands)
- Nafnskírteini frá Taílandi með upplýsingum um 13 stafa ID númer (einnig ljósrit af nafnskírteininu)
- Vegbréf umsækjanda og ljósrit af vegabréfinu
- Ljósrit af fyrstu tveimur blaðsíðum í vegbréfinu (mynd og upplýsingar um gildistíma vegabréfs)
- Ljósrit af dvalarleyfi (skírteini) á Íslandi
- Umslag þar sem búið er að skrifa utan á nafn umsækjanda og heimilisfang á Íslandi ( til að senda til baka)
- 290 kr. danskar
Gögn sem þurfa að fylgja með umsókn fyrir yngri en 20 ára
- Umsókn um vegabréf ( til hjá Búddistafélagi Íslands)
- Nafnskírteini frá Taílandi með upplýsingum um 13 stafa ID númer og ljósrit af nafnskírteininu ( ef við á)
- Vegbréf umsækjanda ( ef umsækjandi hefur áður fengið vegabréf) og ljósrit af vegabréfinu
- Fæðingarvottorð og ljósrit af vottorðinu.
- Hjúskaparvottorð foreldra og ljósrit af vottorðinu
- Vegabréf foreldra og ljósrit af nafnskírteini foreldra frá Taílandi með upplýsingum um 13 stafa ID númer.
- Forsjárgögn eða upplýsingar um hver sé með forræði barnanna. Foreldrar eða forráðamenn þurfa að skrifa undir umsókn fyrir börnin.
- Umslag þar sem búið er að skrifa utan á nafn umsækjanda og heimilisfang á Íslandi ( til að senda til baka)
- 290 kr danskar
Það er líka hægt að borga fyrir umsóknir með íslenskum krónum
Ef foreldrar eða forráðamenn geta ekki skrifað sjálfir undir umsókn fyrir barn þarf að fylgja með umboð sem stimplað er hjá sýlsumanni í heimabæ og utanríkisráðuneyti í Bangkok
Panta þarf tíma hjá Andreu Sompit Siengboon í síma 564-5825 eða 896-2170 netfang: andreasompit@gmail.com
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá taílensk-íslenska félaginu í síma 897-3611 netfang: petrad@internet.is, í síma 845- 2530 netfang: phetchada@gmail.com og hjá Búddistafélagi Íslands í síma 564-0315 netfang: watthaiiceland@hotmail.com www.watthaiiceland.net
