Morgunverðarfundur með frambjóðendum til borgarstjórnar
Þann 30. apríl nk. verður morgunverðarfundur með frambjóðendum í komandi sveitarstjórnarkosningum um málefni innflytjenda á Grand Hótel, kl. 8:00-10:00.
Dagskrá:
Ávarp fyrir hönd Teymis um málefni innflytjenda: Kristín Vilhjálmsdóttir, Borgarbókasafni.
Fulltrúar framboða til borgarstjórnar flytja erindi um framtíðarsýn síns flokks í málefnum innflytjenda og sitja í pallborði.
Þátttakendur eru:
Kjartan Magnússon fyrir Sjálfstæðisflokk,
Oddný Sturludóttir fyrir Samfylkinguna,
Sóley Tómasdóttir fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð,
Einar Skúlason fyrir Framsóknarflokkinn.
Fulltrúum Æ-, H- og F-lista var einnig boðin þátttaka.
Að erindum loknum geta fundargestir lagt spurningar fyrir frambjóðendur.
Fundarstjóri: Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Notum tækifærið til að koma málefnum innflytjenda á dagskrá kosninganna í vor!
TEYMI UM MÁLEFNI INNFLYTJENDA er samráðsvettvangur stofnana ríkis og sveitarfélaga, fyrirtækja og frjálsra félagasamtaka sem vinna að málefnum innflytjenda sem hefur starfað síðan 1995.
Áhugasamir geta skráð þátttöku með því að senda tölvupóst á; teymid@gmail.com eða hjá Gerði í síma 8230767.
Morgunverðurinn kostar 1.850 kr. og er það aðgangseyririnn.
