Fréttir

Heimsdagur barna

Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og frístundamiðstöðinni Miðbergi, laugardaginn 24. apríl á milli klukkan 13.00 og 17.00

Ari Jónsson 23.4.2010

Heimsdagur barna verður haldinn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og frístundamiðstöðinni Miðbergi laugardaginn 24. apríl kl. 13-17.
Boðið verður upp á spennandi listsmiðjur þar sem allir krakkar geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem þau vilja leika indíána, búa til sitt eigið tónverk, gera einfaldar tilraunir, ferðast til framandi landa eða aðstoða við efnafræðibrellur sem gætu endað með sprengingu!

Listsmiðjur tengdar litríkri menningu ýmissa þjóða standa frá kl. 13-16 og skemmtidagskrá frá kl. 16 -17.

Nánari upplýsingar ásamt dagskrá má nálgast hér og á heimasíðu Gerðubergs - www.gerduberg.is

Upplýsingar á:



 

Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.