Tilkynning vegna þeirra ferðamanna sem komast ekki heim vegna lokunar flugvalla
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út tilkynningu vegna þeirra sem ekki hafa komist frá Schengen-svæðinu vegna lokunar flugvalla og eru með áritanir sem eru útrunnar 15. apríl eða síðar. Ekki er þörf á að framlengja vegabréfsáritanir í þeim tilvikum, heldur verða vegabréf ferðamanna stimpluð við brottför út af Schengen -svæðinu án þess að litið verði svo á að hlutaðeigandi hafi dvalið of lengi á svæðinu, þó áritun sé útrunnin.
Í tilvikum ferðamanna, sem hugðust ekki fara inn á Schengen-svæðið en þurfa þess nú vegna breyttrar ferðatilhögunar, verður unnt að fá útgefna vegabréfsáritun á landamærum, án endurgjalds.
Þrátt fyrir að ekki sé þörf á að fá framlengingu á vegabréfsáritun geta þeir sem vilja engu að síður komið í afgreiðslu Útlendingastofnunar og sótt um framlengingu á áritun. Viðkomandi þarf þá að hafa með sér vegabréf og eina passamynd.
Frétt tekin af vef Útlendingastofnunar - www.utl.is
