Fréttir

Lech Kaczyński, forseti Póllands, fórst í flugslysi í morgun, 10. apríl. Minningarathafnir í Landakotskirkju í dag og á morgun

10.4.2010 Fréttir

Í morgun lést Lech Kaczyński, forseti Póllands, ásamt Mariu Kaczyński eiginkonu sinni og rúmlega 90 öðrum, þegar flugvél hans fórst í vesturhluta Rússlands. Margir af æðstu ráðamönnum pólska hersins, háttsettir embættismenn og seðlabankastjóri landsins létust í slysinu.

Aðalræðismannaskrifstofa Póllands stendur fyrir minningarathöfnun vegna flugslyssins, sú fyrri verður haldin í dag, 10. apríl kl. 16.30 og sú síðari á morgun, 11. apríl, klukkan 13.15. Báðar athafnirnar verða haldnar í Landakotskirkju í Reykjavík.

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar.



Senda grein