Fréttir

Framfærsluviðmið vegna dvalar- og búsetuleyfa breytt

8.3.2010 Fréttir

Útlendingastofnun hefur gert breytingar á viðmiðum um trygga framfærslu. Í stað þess að miða framfærslu við launatekjur að frádreginni staðgreiðslu verður nú miðað við heildartekjur útlendings fyrir staðgreiðslu. Þetta á við þegar framfærsla umsækjanda byggir á launatekjum.

Breytingin nær til allra umsókna um dvalar- og búsetuleyfi sem nú eru í vinnslu hjá Útlendingastofnun. Þá mun Útlendingastofnun einnig endurskoða þær umsóknir sem synjað var frá 1. október 2008 vegna fyrra viðmiðs, það er þegar ákvörðun var tekin út frá framfærslu á launatekjum að frádreginni staðgreiðslu.

Nánar á vef Útlendingastofnunar



Senda grein