Fréttir

Skráning í íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefst þann 1. mars nk.

Ari Jónsson 16.2.2010

Íslenskupróf, vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt, verða haldin hjá Námsmatsstofnun 31. maí næstkomandi fyrir þá sem hafa skráð sig í próf fyrir 10. maí. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma eiga kost á því að taka próf í desember 2010.

Prófin verða haldin í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins ef næg þátttaka fæst.

Skráning í prófin hefst 1. mars nk. og fer hún fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um hvar prófin fara fram, sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550-2400.

Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur.



 

Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.