Fréttir
Ríkisborgarar Serbíu, Svartfjallalands og Makedóníu nú undanþegnir því að framvísa vegabréfsáritun
Samkvæmt breytingu á reglugerð um útlendinga (53/2003) eru ríkisborgarar Serbíu, Svartfjallalands og Makedóníu nú undanþegnir því að framvísa vegabréfsáritun við komuna til landsins. Undanþágan gildir aðeins fyrir þá sem eru handhafar vegabréfa með lífkennum.

