Fréttir

Skattgreiðslur á árinu 2010

Ari Jónsson 29.12.2009

Alþingi samþykkti nýverið lög sem fela í sér breytingar á skattgreiðslum, þ.e. staðgreiðsluhlutfalli tekjuskatts, útsvari og persónuafslætti fyrir árið 2010.

Stærsta breytingin er sú að á árinu verður í fyrsta sinn innheimt þrepaskipt staðgreiðsla á tekjuskatti. Það felur í sér að staðgreiðsluhlutfallið tekur mið af tekjum launþega og er skipt upp eftir þremur þrepum, 37,22% af launum undir 200 þúsund á mánuði (2,4 milljónir á ári), 40,12% af launum sem sem eru 200 til 650 þúsund á mánuði (2,4-7,8 milljónir á ári) og 46,12% af launum sem eru hærri en 650 þúsund á mánuði (7,8 milljónir á ári). Staðgreiðsluhlutfallið samanstendur bæði af tekjuskatti og útsvari.

Persónuafsláttur hækkar um 24.000 á ársgrundvelli og verður þá 44.205 kr. á mánuði eða 530.466 kr. á ári.

Í hnotskurn

1. þrep => Tekjuskattur (24,1%) + útsvar (13,12%)* = 37,22% á tekjur undir 2,4 milljónum á ári (200 þúsund á mánuði).

2. þrep => Tekjuskattur (27,0%) + útsvar (13,12%)* = 40,12% skattur á tekjur á bilinu 2,4-7,8 milljónir á ári (200-650 þúsund á mánuði).

3. þrep => Tekjuskattur (33,0%) + útsvar (13,12%)* = 46,12% skattur á tekjur yfir 7,8 milljónir á ári (650 þúsund á mánuði).

* Útsvar getur verið mismunandi eftir sveitarfélögum, á bilinu 11,24%-13,28%, en í tölunum hér að ofan er miðað við meðalútsvar, 13,12%.

Launþegi ber ábyrgð á að greiða samkvæmt réttu skattþrepi og ef hann til að mynda er í tveimur störfum og fer yfir í næsta skattþrep þarf hann að tilkynna það til launagreiðanda. Endanleg ákvörðun tekjuskatts og útsvars fer fram við álagningu opinberra gjalda hinn 1. ágúst ár hvert og ef launþegi hefur greitt tekjuskatt samkvæmt lægra þrepi en honum er skylt mun hann þurfa að greiða mismuninn til baka.



 

Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.