Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir í Þróunarsjóð innflytjendamála
Innflytjendaráð auglýsir eftir styrkumsóknum úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2010. Skila skal umsóknum á þar til gerðu umsóknareyðublaði til félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að skila rafrænt á netfangið: postur@fel.stjr.is.
Nánar um Þóunarsjóð innflytjendamála
Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda innflytjendum aðlögun að íslensku samfélagi. Ennfremur að afla þekkingar sem nýst getur til þess að koma betur til móts við þarfir innflytjenda og móttöku þeirra.
Úthlutað er úr sjóðnum árlega og sérstök áhersla er lögð á einstaka viðfangsefni hverju sinni. Að þessu sinni er áhersla lögð á eftirfarandi viðfangsefni:
- Áhrif efnahagsástandsins á stöðu innflytjenda og þá sérstaklega langtímaatvinnuleysi.
- Áherslur framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda.
- Önnur verkefni koma einnig til álita.
Styrkir verða almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Grasrótar- og hagsmunafélög innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um í sjóðinn. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 10 milljónir króna. Styrkir geta verið að hámarki helmingur heildarkostnaðar verkefnis. Unnt er að sækja um á íslensku og ensku.
- Umsóknareyðublað á íslensku (pdf)
- Umsóknareyðublað á ensku (pdf)
- Auglýsing um styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála
- Reglur um úthlutun styrkja úr Þróunarsjóði innflytjendamála
- Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
- Almennar upplýsingar um Þróunarsjóð innflytjendamála
