Fréttir

Jólaúthlutun - aðstoð fyrir jólin

30.11.2009 Fréttir

Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands, ásamt Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, mun standa fyrir jólaaðstoð í samstarfi við EYKT byggingarfélag. Sækja þarf um aðstoðina fyrirfram á einhverjum af neðangreindum stöðum. Íbúar á landsbyggðinni sækja um hjá prestum eða félagsráðgjöfum. Síðasti dagur til að sækja um er fimmtudagurinn 10. desember.

Hægt er að sækja um aðstoð hjá:

  • Hjálparstarfi kirkjunnar, Háaleitisbraut 66, þriðjudaga til fimmtudaga, (1., 2., 3., 8., 9. og 10. desember). Opið er á milli klukkan 11 og 12 og aftur á milli klukkan 14 og 16.
  • Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12, á sömu dögum en á milli klukkan 11 og 14.

Úthlutunin sjálf fer fram í Norðlingaholti 12 (MEST-húsið) þriðjudaginn 15. desember til og með föstudagsins 18. desember á milli klukkan 10 – 12 og 13 – 16. ATH. að sækja þarf um áður!

Aðstoðin er unnin í samstarfi við Rauðakrossdeildir Kópavogs og Hafnarfjarðar og Mæðrastyrksnefnir þar. Skráning umsókna er sameiginleg svo aðeins er hægt að sækja um á einum stað.

Hægt er að nálgast þessar sömu upplýsingar á ensku, spænsku og pólsku hér fyrir neðan.

- Food distribution

- Distribución de Navidad

- Przydzial swiateczny



Senda grein