Er lögheimili þitt rétt skráð í þjóðskrá?
Nú er unnið að frágangi íbúaskrár 1. desember.
Mikilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum er lögheimili sá staður, þar sem maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er á þeim stað þar sem maður hefur bækistöð sína dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á lögheimili er að tilkynna innan 7 daga frá flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Enn fremur má tilkynna flutning beint til Þjóðskrár.
Eyðublað vegna flutningstilkynninga er að finna á slóðinni: http://www.thjodskra.is/media/eydublod/flutn.pdf
